Lengi lifi samlífi tveggja einstaklinga
Aðrar bloggsíður okkar
Aulasíða fyrir nýja bloggara
Dagsetning
10. febrúar 2012
12.04.2007 12:44:12 / erla

Hittingur pa lördag?

Sælar systur

Til hamingju Sara með nýju íbúðina þína :) - því miður kom ég ekki í innflutningspartíið því ég bara vissi ekki af því :(  Var líka uppi í bústað um helgina þannig að ég hefði svosem ekki komist......verð bara að kíkja í heimsókn til þín við tækjó!

En hvernig er það - erum við að stefna að því að hafa júnkuhitting á laugardaginn?  Er stemning fyrir því? 

 Kv. Sigga súper


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2007 20:04:15 / sara

Innflutningsparty háaldraðrar konu

Hæ elskurnar

 

Í tilefni af brottflutningi mínum af heimili foreldra minna ætla ég að efna til teitis þann 2. mars, sem mun vera föstudagur. Nánari upplýsingar koma líklega símleiðis er nær dregur en takið daginn frá :D

Sara 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 22:03:43 / erla

Sólarsamba

:lol: ég og yndislegi maðurinn minn erum að fara ásamt einhverjum fleirum til hinnar sólríku eyjar Fuerteventura!  Ævintýrið hefst er við förum í loftið kl 07 eða eftir 9 tíma :D

Þar sem veðurspá næstu viku er 23 gráður og heiðskírt er ég alveg sippandi kát hér að pakka sumarkjólum og baðfötum í tösku8) já og sólgleraugum og sólarvörn!

Kem heim eftir viku með sól í poka handa ykkur elskurnar mínar!!

Takk og bless Erla Sólar-Perla:P


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 13:57:10 / sara

hojhoj!

Elsku dúllurnar mínar! Ég hef sett inn myndir úr gæsuninni hennar Siggu, þær eru undir "nýjustu myndirnar" á heimasíðunni minni (linkur hér til hliðar). Vil ég þakka Siggu fyrir frábært brúðkaup og þakka Guði fyrir að hún slapp úr þessu skelfilega flugdæmi *hrollur*

Annars er ég orðin þrítug og allllveg að flytja að heiman heheh -mun vonandi verða öflug í saumó og partyhaldi enda get ég ekki beðið eftir að bjóða fólki heim án þess að þurfa að henda öðrum út! :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 17:24:03 / erla

Loksins loksins!

Haldiði að maður sé ekki bara búin að búa til heimasíðu fyrir prinsessuna :)  Hún er læst almenningi.  Passwordið er götuheitið okkar í Grafarvoginum.....ekki númer...bara götuheiti!  Kíkið endilega í heimsókn við tækjó og sjáumst svo hressar ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn hinn....eða eitthvað svoleiðis...úffla............la la la.....I'm getting married.....lí lí la.......tamm tammm...úff...er hætt

bæjó spjæjó Sigga soon to be married :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 11:02:50 / erla

Elín heiðursmær

Hún Elín okkar á afmæli í dag og því finnst mér nú aldeilis tilefni að óska henni til hamingju og velfarnaðar á síðasta tuttuguogeitthvað árinu hennar :D

Ella mín þú ert alger gersemi og við eru heppnar að fá að þekkja svona glaðlynda og góða manneskju eins og þig :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 22:02:23 / erla

SELD

nei nei nú kemur ekki færsla um unga konu sem var seld í ánauð til 3ja heimslanda og lenti í svakalegum hremmingum þar heldur lofsaga ...............

Ég er Bond aðdáandi og það svakalegur þekki flest allar myndirnar eins og lófan á mér nema kannski Thunderball.  Ég er Connery-Bond aðdándi og sætti mig við Brosnan sem Bond en var allri lokið þegar ég sá hinn nýja Bond í björgunarvesti í spíttbáti ásamt hinum konunglega breska sjóher, og hafði varann á í gær þegar gamli bauð mér á CASINO ROYALE :!:  Í stuttu máli, vil ekki kjafta því þið verið að sjá hana, þá féllust mér hendur og kjálkinn í gólfið strax í opnunar atriðinu og hið fræga "skot" atriði seldi mig alveg.  Það held ég að sé besta "skot" allra Bonda og ég lýsi því hér með yfir að hann félagi minn Daníel Craig

er alveg farin að jappla í hælana á Connery sem besti Bondinn OG þessi mynd fer beint á topp 3 á bestu Bond myndirnar ásam Goldfinger og Octopussy

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 17:17:00 / erla

Gærkvöldið var sérdeilis prýðilegt hjá hjónaleysunum í Grafarholtinu

Þetta var í matinn hjá mér í gær á Hereford

ásamt þessu og smakkaðist sérstaklega túnfisksteikin sjúklega vel og mæli ég eindregið með henni ef þið skylduð álpast inn á Hereford!!!

Og svo skulu þið fá hann Stebba barþjón til að útbúa nokkra Apple-martinis og þá eru þið komnar með uppskrift af nokkuð góðu kvöldi!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 23:13:57 / erla

Komin frá Englandi

Jæja stelpur þá er ég hætt þessum ferðalögum fram að jólum, að ég held. Ferðin til Englands gékk vel. Setti inn myndir af Ray Gotto inn á síðuna hennar Ingu Birnu.
Magga

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 12:57:39 / erla

Erla að kvarta

:whut: það er ekkert í heimi sem ég hata meira en vef ja.is það er ónýtt drasl:evil:

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.11.2006 15:52:34 / erla

Ég er voða stolt af þessu

Þetta var ég að hjálpa til við að undirbúa :lol: http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1232681

Kv

Erla


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 12:45:33 / erla

AmAzing

fi yuo cna raed tihs, yuo hvae a sgtrane mnid, too. Cna yuo raed tihs? Olny 55 plepoe tuo fo 100 anc. i cdnuolt blveiee taht I cluod aulaclty uesdnatnrd waht I was rdanieg. The phaonmneal pweor of the hmuan mnid, aoccdrnig to a rscheearch at Cmabrigde Uinervtisy, it dseno't mtaetr in waht oerdr the ltteres in a wrod are, the olny iproamtnt tihng is taht the frsit and lsat ltteer be in the rghit pclae. The rset can be a taotl mses and you can sitll raed it whotuit a pboerlm. Tihs is bcuseae the huamn mnid deos not raed ervey lteter by istlef, but the wrod as a wlohe. Azanmig huh? yaeh and I awlyas tghuhot slpeling was ipmorantt! .....

ótrúlega sniðugt..ekki satt ???

Erla


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 18:58:37 / erla

Gleðilegan Nóvember

Langaði bara að segja til Hammó með nóvember mánuð dúfurnar mínar:D

Ég ligg núna heima með hor, hálsbólgu og hita, svaka stuð:cry: er alveg óþolandi pirruð á þessu og langar að láta vorkenna mér;)

Kv

Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 23:28:02 / erla

Magga var að fikta

Ég var að setja inn tengil inn á síðuna hennar Ingu Birnu. Var að koma frá Boston, verslaði heilan helling. Er að fara til London með familíuna á föstudagainn, stutt stopp bara að heilsa aðeins upp á pabba hans Óla.
Heyrumst Magga

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti